|
13.03.2008 18:30:56 / sleep
Búið að taka nafnið mitt af mér og ég þurfti að fá mér nýtt!! En þetta er voða fallegt  Over and out!
»
17.01.2008 17:53:50 / sleep
Ussussuss, það er snjór í borginni!! Og það mikill!! En við Yaris reddumessu sko alveg sjálfir ojáJ Maður þrykkir bara bílnum áfram og stígur bensínið í botn og allir sáttir ... veit reyndar ekki alveg hvað löggan var að reyna að blikka mig (hugsi hugs...) NEI DJÓK! Engin lögga á eftir mér frekar en fyrri daginnJ Annars held ég að vika tvö í að vakna í vinnuna hafi verið erfiðari en vika eitt einhverra hluta vegna ... Spurning með viku þrjú??? Svo er ég orkuboltinn búin að bæta inn æfingu hjá mr Ofurþjálfa kl 10 á laugardagsmorgnum!! Geri aðrir betur múhahahahahahahahahahaJ
»
13.01.2008 18:07:18 / sleep
What can I say??? Þá er maður kominn aftur í sína venjulegu og hversdagslegu rútínu eftir snilldar jól og áramót og það er bara allt í lagi ... svona þokkalegt .. doldið erfitt að vakna svona snemma og vera í vinnunni allan daginn ennnn svona er víst að vera fullorðins Byrjuð í jóga tvö kvöld í viku að reyna að liðka mig aðeins til. Það er nú ekkert grín að reyna að teygja og beygja sig eftir svona langa kyrrsetu múhahahahaha. Ekkert sérstakt svo sem í fréttum. Vildi bara láta vita af mér enn einu sinni ef einhver væri að fylgjast með mér. Þangað til næst ...
»
17.12.2007 12:48:01 / sleep
Er ekki desember nákvæmlega mánuðurinn til þess að vera ofurmenningarlegur??? Ég held því fram og geri það að venju minni í þessum mánuði að vera ofurmenningarlega svöl og þetta ár verður nú ekki síðra ... eða kannski örlítið færri tónleikar en ekki svo mikiðJ Menningin hófst með árlegum jólatónleikum Léttsveitarinnar 6. desemberJ Elsku bestu léttur! Þið eruð alltaf æði og ómissandi á jólunum. Það finnst okkur mömmu allavega og við nutum okkar út í ystu æsar þar sem við sátum og hlustuðum á ykkar fallega söng við fagran undirleik og ekki spyllti einsöngvaradívan fyrir, ó neiJLaugardaginn 8. desember fórum við parið ásamt Höddu, Línu og Evu á Jólagestatónleika Björvins Halldórssonar, BÓ! Það var algjörlega magnað og valinn maður í hverju rúmi – eða í hverju lagi Algjör snilld, flott tónlist, hress og skemmtileg og mjög fjölbreyttJ Eitthvað fór það samt í taugarnar á mér að sumir gátu ekki setið á sér að tala soldið mikið meðan á tónleikunum stóð og það versta var að ég sat á milli þeirra!!! Var ég kölluð “stíví” upp frá þessu ...Tónleikamenningunni hér í höfuðborginni lauk síðan með pompi og prakt er við parið skelltum okkur á hugljúfa jólatónleika Frostrósa ásamt Ingunni og Hjalta, Halldóru og Gumma, Höddu og Ása. Byrjuðum á því að fá okkur að borða á Aski en þar sem nokkrir voru nýbúnir að borða yfir sig af veitingum frá því í barnaafmæli sama dag og aðrir voru eitthvað slappir eða eiginlega lasnir voru hinir sem máttu hafa sig alla við að halda uppi heiðri hópsins með áti. Kann ég þeim bestu þakkir fyrir þar sem ég var bæði nýkomin úr afmæli og lasin Tónleikarnir sjálfir voru í einu orði sagt yndislegir og ég naut mín í botn! Passaði mig á því að sitja ekki á milli þeirra sem töluðu svo mikið og svo bara ... Sitja og hlusta og njótaJ Dívurnar voru æði: Hera Björk, Regína Ósk, Heiða og Margrét Eir, Tenórnarir mjög góðir (reyndar doldið hátíðlegir á köflum um of en það eru nú einu sinni að koma jól), gospelkór og Karlakórinn Fóstbræður og Skólakór KársnessJÞað sem er framundan er leikhúsferð með hele famelien á Akureyri að sjá Óvita föstudaginn 21. des og það er BANNAÐ að hafa vont verður takk fyrir takkJ
»
07.12.2007 21:39:05 / sleep
Hvað er málið með allar þessar ilmvatnsauglýsingar í sjónvarpinu? Hver er eiginlega tilgangurinn með þeim?Í ilmvatnsbúðinni: Hmmmm, hvaða ilmvatn var nú verið að auglýsa í sjónvarpinu um daginn??? NOT!Er þetta ekki spurning um lykt en ekki lúkk eða hver auglýsir??
»
04.12.2007 19:22:15 / sleep
Eruð þið búin að kaupa handa mér afmælisgjöf???
»
14.11.2007 16:03:25 / sleep
Vildi bara láta vita að ég er enn á lífi Er alveg að massa það í líkamsræktinni og vinnunni Sambúðin gengur fínt og allir kátir Er að koma mér í jólaskapið svona hvað úr hverju með jólatónlist og þvílíku. Kannski maður fari að föndra jólakort og skreyta og svona. Við sambýliskonan gerðum díl um að ég megi setja upp allt jóladótið mitt með því skilyrði að venjulega dótið (kannski svona þrjár styttur!) fari inn í skáp á meðan. Thíhí ... samningaviðræður á góðu stigi þessa dagana. Yfir og út ...
»
13.10.2007 15:40:27 / sleep
Það er aftur komin helgi!! JibbííííííJ Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt ... á gerfihnattaöööl:Þ Jamm, smá júrovisjón HELGA! Er þetta tákn um það að maður sér orðinn svona gamall að manni finnst alltaf vera sami dagurinn eða er maður svona ótrúlega bissí að maður hefur ekki tíma til að staldra við eða er bara svona ógisslega gaman hjá mér???? Ég held þetta sé sitt lítið af hvoru - þó síst kannski þetta með að hafa ekki tíma til að staldra við. Það er nú bráðnauðsynlegt að gera það endrum og sinnum. Þá fattar maður og man eftir hvað maður á magnað líf takk fyrir takkJ Eruð þið annars ekki komin í jólaskap???? ... einhver? Bara einhver? ... er einhver að tengja? Lion King kannski? Múhahahahaha ... og djók. Ég er ekki svo gömul er það? Bara smá lúði ... eða smálúða múhahahaha ... nú er ég hætt. Góða helgina allirJ
»
09.10.2007 20:02:58 / sleep
já fínt ... já sæll ... já fínt já sæll já fínt já sæll ... já fínt ... já sæll ... já fínt já sæll já fínt já sæll ... já fínt .. já sæll ...
»
05.10.2007 18:49:00 / sleep
Í þessarri vinnuviku hef ég slegið mjög svo persónulegt met! Ég bjóst aldrei við að ég myndi nokkurn tíma afreka þetta en nú hefur það gerst! Í þessarri viku mætti ég í ræktina fjóra af fimm virkum morgnum vinnuvikunnar!! Það þýðir:Mánudag – vakna kl 06, æfing kl 06.30Þriðjudag – vakna kl 07, ekki æfing Miðvikudag – vakna kl 06.30, æfing kl 07Fimmudag – vakna kl 06, æfing kl 06.30Föstudag – vakna kl 06, æfing kl 06.30.Það er skemst frá því að segja að ég er ógisslega þreytt og alveg búin áðí og ætla því bara að hafa það rólegt í kvöld zzz ... zzz ... zzz ...
»
25.09.2007 07:52:00 / sleep
Mín bara komin í einkaþjálfun takk fyrir takk kl 6.30 á mánudags, miðvikudags og föstudagsmorgnum. Þurfum við að ræða það eitthvað?????
»
14.09.2007 07:53:12 / sleep
Afhverju í andk... (afsakið orðbragðið svo snemma dags) kem ég mér ekki til þess að hreyfa á mér rassgatið???? Ég held ég drepist úr leti fljótlega ef ég fer ekki að gera eitthvað. Sbr. Dánaroskök - LETI .... 
»
11.09.2007 20:30:36 / sleep
Gettu hvar ég var
»
05.09.2007 22:26:07 / sleep
Það er kominn september gott fólk!! Og hvað gerist í september??? Jú, skólarnir byrja. Öll litlu börnin fara í fyrsta skipti í skólann og mömmu og pabba og týnast í öllu öngþveitinu! Fyrir utan alla hina sem þangað mæta. Bændurnir æða út á kartöflugarðana að taka upp sínar gómsætu kartöflur til að þvo og flotta og pakka og selja í búðirnar þar sem allir geta keypt þær. Haustið dembist yfir mann eins og lög gera ráð fyrir með sínu roku og rigningu, allavega hérna fyrir sunnan. Allir komast “loksins” í sína daglegu rútínu, kaupa sér kort í ræktina og ljós og spa og allan pakkann og nú skal sko tekið á því svo maður komist í kjólinn fyrir jólin. Námskeiðafíknin grípur um sig og landinn er út um allt að reyna að troða í sig meiri þekkingu, sveigja og beygja líkamann, fara á hina ýmsu kúra, lesa uppbyggjandi bækur og svo framvegis. En síðast en ekki síst eru það nú réttirnar!!! J Þær verða sem sagt í rétt Höfðhverfinga nk laugardag og vá hvað ég hlakka til. Ef þú verður á svæðinu þá sjáumst við ... annars ekki múhahahahaha
»
01.09.2007 21:53:24 / sleep
... ætla ég að vera heimavinnandi húsmóðir með fullt af börnum, skrifa barnabækur, kenna söng, baka geggjað góðar kökur, bjóða hinum húsmæðrunum í kaffi og hafa það gott. Er það nokkur til of mikils ætlast????
»
Síður: 1 2 3 ... 15
|